156. löggjafarþing — 3. fundur,  11. feb. 2025.

lyfjalög og lækningatæki.

4. mál
[18:33]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég fagna því að nú í dag er þetta mikilvæga frumvarp komið aftur til umræðu í þinginu. Mér telst til að þetta sé þriðja frumvarp hæstv. heilbrigðisráðherra og þriðja frumvarp Framsóknar má segja í dag, það er einmitt endurflutt frá síðasta þingi. Það er brýnt að tryggja betra viðbúnaðarkerfi fyrir lyfjaskort og styrkja samstarf við önnur Evrópuríki en Covid-faraldurinn sýndi okkur það að Ísland, líkt og önnur lönd, getur átt í erfiðleikum með að tryggja nauðsynleg lyf og lækningavörur og -tæki á hættutímum. Því er skynsamlegt að við séum að taka þetta skref hér og taka þátt í samræmdum viðbrögðum og upplýsingagjöf á vettvangi Evrópu. Frumvarpið sem hefur einmitt verið lagt fram nokkrum sinnum áður, eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra, gengur út á það að uppfylla skyldur Íslands gagnvart EES-samningnum og það hefur alveg tekið breytingum á milli framlagninga.

Það sem mér finnst mikilvægt, þegar svona mál eru til umræðu, er að gæta okkar varðandi upplýsingaskyldu og eftirlitsheimildir, að þær verði ekki of íþyngjandi fyrir lyfjageirann og þá sérstaklega smærri innflytjendur. Einnig verðum við að tryggja það að lyfjaskortur verði ekki einfaldlega bókfærður í skýrslur heldur að raunverulegar aðgerðir fylgi eftir þegar hætta steðjar að.

Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig verður það tryggt að þessar nýju skyldur leiði ekki til aukins kostnaðar og flækjustigs fyrir lyfjainnflutning og -dreifingu á Íslandi?