157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:33]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það eru svona nokkrir hlutir. Í fyrsta lagi: Hv. þingmaður vísaði til hlutfalls. Skuldirnar eru ekki að lækka þótt þær séu lægri hlutfallslega ef þú eykur landsframleiðslu. Þetta veit hv. þingmaður en hann kýs að leggja hlutina upp með öðrum hætti. Það er ekki gott. Varðandi það að frumvarpinu hafi ekki verið hafnað. Já, ókei, allt í góðu. Förum aðeins yfir það. Ég er reyndar með nefndarálitið hérna þar sem segir, með leyfi forseta: „Í ljósi þessa leggur minni hlutinn til að frumvarpinu verði hafnað í heild sinni og áfram verði byggt á núverandi kerfi.“ Undir þetta skrifa hv. þingmenn Vilhjálmur Árnason, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Við þurfum ekki að ræða það neitt meira.

Síðan kemur hv. þingmaður og nefnir eitthvað sem ég hélt að Samfylkingin væri hætt að nefna; planið. Eric ten Hag og Samfylkingin eiga það sameiginlegt að vera einu aðilarnir í hinum vestræna heimi með planið. Og Eric ten Hag var að missa starfið aftur.

Virðulegi forseti. Ég ætla ekkert að fara að ráðleggja öðrum hv. þingmönnum en ég held að það sé mjög erfitt fyrir nokkurn mann, sama hversu mælskur viðkomandi er, sama hversu klókur hann er í stjórnmálum, að reyna að sannfæra nokkurn mann um að það hafi verið eitthvert plan. Það var aldrei neitt plan. Við hlustuðum hérna á hæstv. fjármálaráðherra. Ja, planið hans, ef eitthvert plan er, það er að fylgja eftir því sem síðasta ríkisstjórn gerði.