157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:57]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og líka spurninguna, hún spurði hvort þetta væri ekki bara aðför að konum. Ég skal bara svara því: Jú, þetta er aðför að konum. Af hverju það? Jú, samsköttunin snýst um það að þú berð sömu ábyrgð. Í hjónabandi berð þú ábyrgð á skattaskuldum maka þíns. Þarna er verið að nýta tekjurnar á sama hátt, að það séu einmitt réttindi og skyldur. Ef 80% þeirra sem nýta þetta eru karlmenn þá erum við, með því að afnema samsköttunina, að gera konurnar sem eru ekki að nýta þetta háðari þeim fjárhagslega. Við erum að draga úr jafnrétti, fjárhagslegu jafnrétti, innan fjölskyldunnar. Þannig að já, það er verið að ráðast á konur með því að afnema samsköttunina miðað við þá tölfræði sem hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar fór hér með. Það er bara verið að draga úr jafnvæginu innan fjölskyldunnar, grunneiningarinnar. Það er bara staðan. Eina rétta leiðin væri að hafa fulla samsköttun. Fjölskyldurnar eru fjölbreyttar og það eru margar ástæður fyrir því að annar aðilinn geti ekki aflað fullra tekna. Það geta verið langtímaveikindi og örorka, það getur verið nám, það geta verið barneignir, það getur verið starf, eins og sjómennska og annað slíkt, sem kallar á þessar ráðstafanir. Og það á að gera fjölskyldufólkinu þetta erfitt. Ef annar aðilinn getur ekki unnið þarf hinn að vinna meira og þess vegna fær hann aðeins hærri laun. Það er ekki þar með sagt að þetta sé hálaunafjölskylda.