fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir aðra ágæta spurningu. Eins og ljóst er þá hafa umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og atvinnuvegaráðherra sameiginlega staðið að hugmyndum um breytingar og einföldun á eftirlitskerfinu. Þetta er kerfi sem hefur verið dreift og það skapar vandamál sem hv. þingmaður bendir á. Markmið með þessum breytingum er að samræma betur eftirlitið eftir þessar sameiningar en að taka á sama tíma tillit til þess að í hinum dreifðu byggðum geta fá störf sérfræðinga skipt miklu máli og að halda í þau eins og kostur er.
Hvað varðar stuðning við nærsamfélög þá er fyrirhuguð aukning í Fiskeldissjóð og hugmyndin er sú að sú styrking geti orðið að uppsprettu fjármagns fyrir sveitarfélög og nærsamfélög til að styrkja sína innviði.