endurskoðun laga um virðisaukaskatt.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og það væri mjög fróðlegt að taka þátt í þessari umræðu um endurskoðun á lögum um virðisaukaskatt. En fyrst það er vilji til að endurskoða þetta, sama í hvaða formi það verður — nú eru björgunarsveitirnar ekki á fjárlögum og ég veit að þær óska ekki eftir því, þær vilja standa undir sínu starfi sjálfar, m.a. með sjálfboðaliðastarfinu sem er stór þáttur í þeirra störfum. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sé reiðubúinn að hefja strax skoðun á því, fyrst það eru til fordæmi fyrir því, það væri einfalt og sanngjarnt skref, að veita tímabundna undanþágu frá virðisaukaskatti á helstu fjáröflunarverkefni björgunarsveitanna, líkt og gert er með Neyðarkallinn. Það væri gert varðandi flugeldasölu núna í ár, því að mér reiknast til að björgunarsveitirnar muni greiða hátt í 200 millj. kr. í virðisaukaskatt vegna flugeldasölu um næstu áramót. (Forseti hringir.) Væri það ekki bara kærkomin áramótagjöf til björgunarsveitanna að veita slíka ívilnun í ár á meðan við finnum út úr hinu?