157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[16:34]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Hér er mikið rætt um skráningarskylduna. Mér finnst ekki hafa komið nógu skýrt fram: Hvað haldið þið að gerist ef ekki má hækka leigu í 12 mánuði? Verða kannski allir samningar orðnir 13 mánuðir? Mögulega, en það sem mun mjög líklega gerast er að það verður bara hærri leiga frá upphafi. Hér var minnst á eðlilegan og heilbrigðan markað. Er þetta til að stuðla að því? Nei, bara alls ekki.