staða lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Virðulegur forseti. Við getum verið mjög stolt af lögreglunni okkar. Hún mælist mjög há í trausti. Um 80% landsmanna treysta lögreglunni vel og það er óvenjumikið traust þannig að við getum verið mjög stolt af framgangi lögreglunnar.
Það hafa orðið mjög miklar breytingar á högum lögreglumanna, breytingar á embættum. Hér hefur verið talað um breytingarnar árið 2007 sem voru mjög miklar á höfuðborgarsvæðinu, sameining embætta. Síðan þá hefur lögreglumönnum fækkað um meira en 40 manns og það er hlutfallslega mikil fækkun. Talsvert færri lögreglumenn vinna sömu verkin og jafnvel erfiðari verkefni en fyrir fækkun. Þetta eykur auðvitað mjög mikið álag eins og frummælandi lýsti mjög vel, hv. þm. Vigdís Hauksdóttir. Það er mjög mikið álag á lögreglumönnunum okkar.
Það hefur heyrst í umræðunni að gera eigi frekari breytingar og ég vil gjarnan spyrja hæstv. dómsmálaráðherra út í þær. Ég átta mig ekki á því hversu djúpt þær hugmyndir rista og hvort hrinda eigi þeim í framkvæmd eða ekki. Fyrir stuttu lýsti Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, því í fjölmiðlum að það væri mjög mikil og almenn andstaða hjá lögreglumönnum um allt land við því að færa svokallaða landsdekkandi starfsemi, þ.e. sérsveitina og fjarskiptamiðstöðina, frá ríkislögstjóraembættinu til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar sem lögreglumenn almennt, miðað við orð Snorra, telja engin rök fyrir þessu vil ég gjarnan fá að spyrja hæstv. ráðherra hvar þessar hugmyndir séu núna. Er hæstv. ráðherra að vinna að þessu máli eða er þetta eitthvað sem verður bara lagt til hliðar vegna mikillar andstöðu innan lögreglunnar (Forseti hringir.) og væntanlega fárra raka fyrir þessum breytingum?