157. löggjafarþing — 32. fundur,  12. nóv. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[16:15]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég segi aftur: Loksins, loksins. Þetta er réttlætismál, þetta er mannréttindamál. Þetta er mál sem í rauninni snertir okkur næstum því öll. Það að leyfa fólki að halda gæludýr í fjöleignarhúsum er einmitt liður í því að koma í veg fyrir þá mismunun sem felst í því að vera efnalítill og hafa ekki efni á því að vera með sérinngang eða vera í einbýlishúsinu sínu. Það er réttlæti sem felst í því að þurfa ekki að taka besta vininn, tíu ára gamlan lítinn hund, og svæfa hann vegna þess að þú mátt ekki flytja hann með þér þangað sem þú flyst. Það er engin einasta ástæða til að hafa áhyggjur af því að hundar eða kettir verði einhvern tíma látnir njóta vafans ef upp kemur sú staða í fjöleignarhúsi að fólk sé að glíma við erfiða sjúkdóma eða ofnæmissjúkdóma. Það hefur í rauninni verið orðum aukið og dapurlegt. Ég hvet bara alla til að kynna sér þetta fallega mál og til hamingju aftur. Við erum kannski aðeins að nálgast það sem gerist í löndunum í kringum okkur og (Forseti hringir.) skríða út úr torfkofunum hvað það varðar að hugsa um gæludýrin okkar.