fjöleignarhús.
Frú forseti. Nú geta margir glaðst því ekki þarf að berjast lengur fyrir því að hafa gæludýrið sitt með sér í íbúð sína í fjöleignarhúsi. Öll þekkjum við, ýmist persónulega eða hjá vinum og vandamönnum, hvernig gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt, ekki síst hjá þeim sem eru einmana. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á góð áhrif af umgengni manna við dýr. Rannsóknir sýna að umgengni við dýr eykur tilfinningalega og líkamlega vellíðan og eykur m.a. sjálfstraust, einbeitingu og athygli, og minnkar einnig streituviðbrögð. Frumvarpið fetar hinn vandrataða milliveg milli réttinda, annars vegar gæludýraeigenda og hins vegar annarra íbúðareigenda. Þar með er tryggt að eignarréttur annarra íbúa verði ekki gerður réttindalaus.