fjöleignarhús.
Virðulegi forseti. Ég verð að segja að þegar ég fór að kynna mér málið sá ég að það var ekki alveg svarthvítt. Það eru skiptar skoðanir um þetta. Það sem gerði kannski útslagið hjá mér var auðvitað bara að hlusta á fólk í nefndinni sem hefur fjallað um málið og renna yfir þær umsagnir sem hafa komið og niðurstaða mín er að vera á móti því. Ég get samt alveg tekið undir það sem hér hefur komið fram að það má vel vera að það sé hægt að breyta þessu á annan hátt, í meiri sátt, og ég held að það hefði verið skynsamlegri leið. Því miður verð ég hins vegar að segja nei í þessu máli.
Fyrst ég er þó hér í pontu ætla ég bara að leyfa mér að óska okkur til hamingju með málið sem við samþykktum hér áðan. Inga Sæland, innilega til hamingju með það.