almennar skattahækkanir og álagning refsiskatta.
Frú forseti. Þetta var ekki mjög upplýsandi svar. Það kom reyndar fram að ríkisstjórnin ætlar ekki að hætta í EES. Ég held að enginn hafi gert ráð fyrir því að það væru áform um það hjá þeim, en um leið kom í ljós hvernig þessi ríkisstjórn nálgast EES-samninginn og þennan ótta. Hún þorir ekki einu sinni að verja íslenska hagsmuni með þeim ákvæðum sem EES-samningurinn leyfir og gerir ráð fyrir að ríki geti beitt til þess að til að verja stöðu sína. Það sem ég nefndi hérna áðan lýtur ekki beint að EES-samningnum. Það var svona gjöf, reyndar síðustu ríkisstjórnar, til Evrópusambandsins þegar ákveðið var að ráðast í sérstakar hækkanir, sem munu hækka jafnt og þétt á næstu árum, á flugsamgöngur og flutninga með skipum af því að það átti að reyna að færa okkur í járnbrautarlestir. Það hafði gleymst að kíkja á landakortið áður en Íslandi var blandað í það mál allt saman. Liggur ekki beinast við að byrja á því að hverfa frá þeim áformum og spara þar með íslenskum almenningi loksins einhverja peninga sem þá hugsanlega (Forseti hringir.) er hægt að taka af sama almenningi með öðrum skattahækkunum ríkisstjórnarinnar?