vextir og verðtrygging.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Þegar farið er í slíkar breytingar er þetta eitt af þeim stóru atriðum sem þarf að fara faglega í gegnum og meta. Bara svo það sé alveg á hreinu hef ég verið fylgjandi því að við ákvörðum ekki vexti út frá almennum verðlagshækkunum á neytendalánum til fasteignakaupa. Það hefur veikt ákvarðanir peningastefnunefndar að þessi stóri stabbi sé verðtryggður. Meira að segja Seðlabankinn hefur viðurkennt það og við hv. þingmaður erum alveg sammála þar.
Í frumvarpinu er talað um vísitölu án húsnæðisliðar. Nú eru flestir hagfræðingar á því að það verði að meta húsnæðiskostnað með einhverjum hætti inn í slíkar vísitölur sem eru mælikvarði á almennar verðlagsbreytingar á ákveðnu tímabili. Fimm þættir koma inn í þetta mat, m.a. rafmagn og hiti. Þetta er liður 042 í þessari vísitölu. (Forseti hringir.)
Ég spyr hv. þingmann: Er verið að tala um að taka einvörðungu þann lið sem snýr að notendakostnaði eða hreinlega allan húsnæðisliðinn þannig að húsnæði sé ekkert vegið í verðlagi? (Forseti hringir.) Afsakið, hæstv. forseti.
(Forseti (JÞÓ): Forseti áréttar við þingmenn að virða ræðutíma og bendir á að allar þakkir í upphafi einnar mínútu ræðu taka hálfan ræðutímann.)