veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þótt það sé kannski auðvitað ekki vilji manna þá lítur það sannarlega þannig út og ég held að mál vinnist ekkert betur þótt þau séu unnin hraðar. Það myndi auðvitað vera miklu meiri sátt um þetta ef það væri gefinn meiri tími og þá velti ég því líka fram, af því að nú hef ég ekki setið lengi á þingi, þetta er mín fyrsta vika, en ég bara velti því fram þegar málið gengur til nefndar hvort nefndin muni þá ekki gefa færi á góðum umsagnarfresti. Ég held að það færi vel á því að gefa góðan umsagnarfrest og nefndin myndi gefa sér tíma, hitta þá fjölmörgu aðila sem bæði standa með eða á móti frumvarpinu og bara taka umræðuna svolítið vel inni í nefndinni, hvort það sé kannski einhver leið til þess að vinna áfram þetta mál af því að eins og staðan er núna þá virðast sveitarfélögin ekki vera að skipta um skoðun og þessi póstur frá Vestfjarðastofu í gær er svona hálfgert ákall um að segja: Heyriði, við vitum að þið eruð að ræða þetta, við erum enn þá ekki tilbúin. Við erum enn ekki komin með nægjanleg gögn.