156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:51]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka fyrir afar áhugaverða pælingu, ef ég leyfi mér að segja það. Já, ég tel að það sé um að gera að skoða það. Ég held hins vegar að sjávarútvegsfyrirtækin sjálf þurfi varla hvatningu í því en það er alltaf gott að hafa meiri hvatningu þegar kemur að málum eins og nýsköpun, vegna þess að íslenskur sjávarútvegur hefur staðið mjög vel með nýsköpun. Eins og hv. þingmaður kom inn á þá eru dæmin ótal mörg. Það er einmitt ástæðan fyrir því að nýsköpun — þetta mun nú helst bitna á henni. Ég vil minna á, og þetta er ekki hótun, ég lít ekki á þetta sem hótun, að ef vinnslurnar fara úr landi er það af því að fyrirtækin eru auðvitað að hugsa um að reyna að vinna á þessari skattlagningu sem mun lenda á þeim. Það mun koma mjög illa við nýsköpun ef vinnslurnar fara úr landi.