veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Mig langar aðeins að fá fram eitt sjónarmið til viðbótar hjá hv. þingmanni. Telur hv. þingmaður að ríkisstjórnin með Viðreisn í fararbroddi í þessu stóra máli sé viljandi að reyna að skekkja samkeppnisstöðu íslensks sjávarútvegs og þetta sé kannski liður í ESB-aðildaráfergju ríkisstjórnarflokkanna, að veikja íslenskan sjávarútveg þannig og draga úr samkeppnishæfni þessarar grundvallarstoðar í íslensku atvinnulífi? Það væri mjög fróðlegt að heyra skoðun hv. þingmanns á þessu atriði.