157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[13:49]
Horfa

Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Samfélag okkar er að breytast hratt og stundum virðist sem það séu að myndast rifur í samfélagssáttmálanum. Við finnum fyrir aukinni hræðslu og tortryggni, jafnvel hér í þessum sal. Tæknibreytingar, samfélagsmiðlar, hraði, ógnir í alþjóðlegu umhverfi og breytt samsetning þjóðarinnar eru áskoranir sem við deilum með mörgum öðrum ríkjum. Við heyrum æ oftar af einmanaleika, kvíða og auknu bili á milli hópa. Þó að við finnum ekki lengur alla Íslendinga í Íslendingabók er ljóst að þeir sem hingað hafa flust búa yfir miklum mannauði og eins og allar manneskjur vilja tilheyra. Rannsóknir sýna að besta leiðin til að brúa bilið á milli ólíkra hópa er sameiginlegt verkefni, eitthvað sem bindur fólk saman. Þar kemur samfélagsleg nýsköpun sterk inn.

Við þekkjum vel kraft grasrótarinnar. Þegar fólk finnur fyrir þörf, einhverju sem þarf að leysa og fær tækifæri til, tekur það höndum saman. Sjálfboðaliðastarf og félagasamtök hafa búið til ómetanlegar lausnir og rennt stoðum undir innviði samfélagsins. Slík þátttaka er ekki einungis góð fyrir málefnin sjálf heldur líka fyrir einstaklingana. Hún skapar tengsl, sjálfstraust og tilfinningu fyrir því að vera hluti af einhverju stærra. Það vilja allir leggja eitthvað af mörkum. Það er ekki hlutverk stjórnvalda að skapa þessi verkefni en það er okkar hlutverk að virkja kraft fólksins með því að styðja markvisst við félagslega nýsköpun og setja skýrara, gagnsærra og aðgengilegra kerfi fyrir t.d. fjármögnun almannaheillafélaga. Þannig getum við tryggt að fleiri frábærar hugmyndir fái að blómstra og að við höldum áfram að vera eitt samfélag sem passar vel upp á alla sem hér búa.