156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:54]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir spurninguna. Jú, ef vinnslurnar fara úr landi mun það hafa gríðarlega mikil áhrif. Mig langar í því samhengi að ítreka að þegar fyrirtæki tala um að vinnsla fari úr landi þá er það ekki hótun. Því langar mig til að þeir stjórnarliðar sem eru hér inni, sem ekki eru margir, beini því kannski til ráðherra sinna að þetta er raunveruleg staða. Þetta er ekki einhvers konar hótun sem þeir hafa í frammi. Þetta er út af aðgerðum og það er út af þessu frumvarpi sem þið eruð að leggja hér fram. Þetta er afleiðing af því. Þetta eru ekki hótanir út í loftið. Norskur sjávarútvegur er gjörólíkur þeim íslenska þannig að já, þetta mun hafa áhrif.