152. löggjafarþing — 39. fundur,  22. feb. 2022.

fjármálastefna 2022--2026.

2. mál
[22:37]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er mjög skýrt í gjaldastefnunni að stefnt er að um 1% raunvexti á hverju ári út tímabilið. Allir útreikningar segja okkur, miðað við lýðfræðilega þróun varðandi öldrun þjóðar, að langmestur hluti af þeirri aukningu fer í heilbrigðiskerfið og lífeyriskerfið. Þá er ekkert rosalega mikið eftir í kjarabætur fyrir lífeyrisþega heldur bara í raunaukninguna þeirra vegna. Svarið við því er þannig mjög einfalt: Nei.