157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:32]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseta hefur borist bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 131, um þjónustugjöld, frá Tryggva Mássyni. Einnig hefur borist bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 226, um sérúrræði, frá Ingibjörgu Isaksen. Þá hafa borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 313, um efnaskiptaaðgerðir, frá Diljá Mist Einarsdóttur, og á þskj. 286, um lögbundið hlutverk og þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri, frá Ingibjörgu Isaksen. Að lokum hefur borist bréf frá atvinnuvegaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 250, um kostnað við eftirlit með hvalveiðum, frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.