forsendur fjárlaga.
Frú forseti. Ég vil leyfa mér að taka undir með þeim hv. þingmönnum sem hér hafa rætt um mikilvægi þess að við höfum allar upplýsingar fyrir framan okkur þegar við förum í 2. umræðu um fjármál ríkisins. Ég vil einnig nefna það, af því að við áttum hér nokkuð snarpan slag á fyrra þingi þegar ekki lágu fyrir allar upplýsingar varðandi fjármálaáætlun, og ítreka að þegar ekki liggja fyrir upplýsingar er aukin hætta á því að hér ríki tortryggni um það að stjórnarliðar ætli að lauma einhverju í gegn. Ég held að það sé mikilvægt að upplýsingarnar liggi fyrir eins snemma og kostur er og að umræðan hér verði góð.