málefni útlendinga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svarið. Ég held að það sem Miðflokkurinn og No Borders eiga sameiginlegt er að við kynnum okkur efni frumvarpanna í útlendingamálum en horfum ekki bara á yfirskriftina, en svo kannski komumst við að ólíkri niðurstöðu. Í sambandi við brottfararstöðina þá er ég ekki að boða neina andstöðu en að sjálfsögðu erum við einmitt að kynna okkur efnið, kynna okkur hvernig þetta hefur farið fram, t.d. erlendis, og það er bara hluti af umræðunni sem við þurfum að taka. Ég vísaði til þess að mér fannst þær upplýsingar koma frá hæstv. forseta Alþingis að ákveðið frumvarp væri á leiðinni í gegn en ekki önnur, þaðan koma þessar ályktanir mínar. Það er ekki að við styðjum þau ekki, við viljum fá þessi frumvörp áfram, alla vega um afturköllun alþjóðlegrar verndar. En það er gott að heyra að hæstv. ráðherra tekur þetta enn alvarlega. Ég nefni skýrsluna um dvalarleyfi utan EES. Við í Miðflokknum tölum einmitt um alla flokka í þessum málum. Ég hefði áhuga á að vita hvort hæstv. dómsmálaráðherra vill og hefur áhuga á og stefnir að því að gera svipaða úttekt einfaldlega á fólki sem hefur komið hingað á grundvelli EES. Það er auðvitað allt frá Þjóðverjum og Spánverjum og líka til fólks frá Búlgaríu og Rúmeníu. (Forseti hringir.) Fer fram svipuð úttekt á innflytjendum frá EES vegna þess að það er sannarlega stóri flokkurinn? Ég minni á það að stjórnvöld hafi nú heimildir til þess að hafa betri stjórn á því en við höfum núna, m.a. á grundvelli sama ákvæðis og Evrópusambandið notar til að beita tollum gegn okkur, 112. gr.