157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

afgreiðsla frumvarpa um útlendingamál.

[14:17]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég kem hérna upp því að það er augljóst að hér á sér stað rökræða vegna samtals sem átti sér stað á fundi með þingflokksformönnum. Það er því kannski ágætt að koma hingað upp og ræða það við forseta að það virðist vera einhvers konar misskilningur að sá listi sem forseti lagði fram með dagsetningarmálum sem þurfa að klárast sé einhvers konar tæmandi listi yfir þau mál sem þingið mun klára. Það kom ekki fram á þessum fundi. Þingflokksformenn óskuðu eftir yfirliti yfir dagsetningarmál og fengu þann lista í hendurnar. En hér er nóg af þingdögum eftir og ég held að það sé lítill salur fyrir því meðal íslensku þjóðarinnar ef þingið ætlar að vera í lága drifinu áður en það fer í mánaðarlangt jólafrí.