139. löggjafarþing — 39. fundur,  30. nóv. 2010.

störf þingsins.

[14:06]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S):

Frú forseti. Ég vil gjarnan eiga orðastað við formann heilbrigðisnefndar, hv. þm. Þuríði Backman, vegna fyrirhugaðrar sameiningar St. Jósefsspítala við Landspítala – háskólasjúkrahús. Ég er ekki komin hingað til að mæla gegn sameiningu. Ég hef talað fyrir sameiningu til að mynda á sviði menntamála en þá verðum við að vita hvert við stefnum. Mér finnst enn og aftur, núna með fréttum frá því í gær, sem verið sé að móta heilbrigðisstefnu samhliða fjárlögum. Enginn veit hvert við erum að fara. Aftur fá starfsmenn St. Jósefsspítala óljósar fréttir og það eina markvissa hjá ríkisstjórninni virðist vera að tutla einhverjum fréttum út, mjög óljósum, um það hvert hlutverk St. Jósefsspítala á að vera til lengri tíma.

Ég hef sjálf komið að sameiningu stórra háskólastofnana, sumar hafa gefist vel, aðrar kannski ekki eins stórkostlega og maður hefði haldið. Það sem þarf að hafa í huga er annars vegar að markmið sameiningar séu skýr og hins vegar að vekja ekki óvissu og óróa meðal starfsfólksins þannig að það viti upp í hvaða vegferð það er að leggja í hverju sinni. Enginn ætlar að koma sér hjá niðurskurði í þessum tillögum. Við þurfum að gera hlutina þar sem þeir eru hagkvæmastir. Það er ekki þar með sagt að það sé sjálfgefið að hlutirnir séu hagkvæmastir innan Landspítala – háskólasjúkrahúss og það er eðlilegt að spurt sé: Er hjúkrunin á St. Jósefsspítala slæm? Er læknisfræðin léleg? Kosta innlagnir, rannsóknir og meðferð meiri fjármuni á St. Jósefsspítala en annars staðar? Ég hef grun um að svo sé ekki þegar betur er að gáð.

Óánægjan núna er fyrst og fremst með að skilaboð ríkisstjórnar Íslands eru mjög óljós. Myndin er ekki skýr fyrir heilbrigðisstarfsfólk, hvort sem það er á suðvesturhorninu eða annars staðar á landinu. Þess vegna vil ég gjarnan fá að vita það, ekki síst í ljósi þeirrar mikilvægu starfsemi sem er á St. Jósefsspítala, (Forseti hringir.) hvernig hv. þingmaður sjái þá starfsemi tryggða til lengri tíma.