störf þingsins.
Frú forseti. Þetta er svolítið tætingsleg umræða en af og til hafa menn verið að ræða skuldastöðu ríkisins og hvar við erum á vegi stödd í þeim efnum. Kannski er ágætt að fá að blanda sér í það þó að það sé ekki nema í tvær mínútur.
Ég held að það eigi að vera hv. þingmönnum huggun sem hefur þó gengið betur jafnvel en á horfðist. Má ég minna á að uppsafnaður rekstrarhalli ríkisins á þessu ári og hinu síðasta er samtals um 70–75 milljörðum minni en fjárlög áranna gerðu ráð fyrir. Skuldastaðan er betri en allar áætlanir framan af ári 2009 gerðu ráð fyrir. Við höfum tekið minni gjaldeyrislán og endurreisn bankakerfisins varð ríkinu mun ódýrari en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir. (Gripið fram í.) Sömuleiðis hefur verðbólga og vextir lækkað hraðar en áætlanir gerðu ráð fyrir sem þegar er að skila sér í lækkuðum gjöldum samanber það sem tekið er inn í fjáraukalagafrumvarpið núna.
Eftir sem áður er staðan að sjálfsögðu erfið. Við erum að glíma við gríðarlegt áfall sem varð og erum að vinna okkur út úr því. Það er ekkert skrýtið að þeir erfiðleikar séu ekki allir allt í einu að baki og það er ákaflega ódýrt að kenna bara ríkisstjórn um að það skuli ekki allt vera komið í himnalag og gullöld og gleðitíð gengin í garð.
Má ég líka minna á að allt tal um greiðslufall íslenska ríkisins er hætt. Það hefur enginn minnst á Parísarklúbbinn í heilt ár, enda er Ísland (Gripið fram í.) komið vel á veg að vinna sig út úr sínum erfiðleikum og komið í meira skjól en mörg önnur ríki núna sem eru að kljást við erfiðleika. Það er hins vegar lítil huggun fyrir okkur og við ættum að tala varlega um það þegar aðrar Evrópuþjóðir eru að lenda núna í miklum hremmingum og miklum stormum því að það mun líka bitna á okkur ef hagvöxtur verður veikur í Evrópu og erfiðleikar á okkar mikilvægasta markaðssvæði. Við þurfum að gera það sem við getum heima fyrir og með þeim tækjum sem við höfum í höndunum til að koma hagkerfinu í gang.
Allt teiknar til þess að viðsnúningurinn sé orðinn í hagkerfinu, stöðugleikanum hefur verið náð og það verður hagvöxtur á næstu missirum, spurning bara hve kraftmikill. Að sjálfsögðu hefðum við viljað hafa hann sem öflugastan en það eru þó mikil tímamót þegar hagkerfið er snúið við og tekið að vaxa á nýjan leik.