forsendur fjárlaga.
Frú forseti. Ég vil einnig árétta áhyggjur hv. þm. Ingibjargar Isaksen um þessar forsendur sem við erum að ræða hér í dag og næstu daga, þ.e. forsendur fjárlaga sem liggja ekki nægilega vel fyrir. Það er alveg ljóst að bandormarnir eru tveir, flóknar breytingar á gjöldum og tekjum ríkissjóðs, kílómetragjald og fleira slíkt, þannig að ég vil bara árétta það við frú forseta að við gefum okkur nægan tíma í þessa umræðu. Auðvitað er það ekki fordæmalaust að þetta sé með þessum hætti en að sama skapi verður erfitt að taka þessa umræðu þegar forsendurnar liggja ekki klárar fyrir. Það er alveg ljóst þannig að ég vil bara árétta það að gefa okkur góðan tíma. Það eru 11 dagar þangað til áætluð þinglok eru þannig að það er skammur tími. Gefum okkur nægan tíma í að ræða þetta.