157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

málefni útlendinga.

[14:08]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Kjarnaatriðið við útlendingamálin finnst mér vera þetta; að útlendingamálin hríslast í gegnum alla málaflokka sem við erum með til meðferðar hér. Útlendingamál hafa með ríkisfjármálin að gera. Útlendingamál eru atvinnumál. Hvar væri íslenskt atvinnulíf ef ekki væri fyrir útlendinga? Þetta nefni ég vegna þess að hv. þingmaður nefnir hér EES. Hérna er stór gjá á milli flokka. Við erum ekki andsnúin samvinnu við önnur ríki. Við viljum fá útlendinga hingað til lands til að sinna vinnu. Ég mun ekki beita mér gegn því að EES-borgarar geti komið hingað til lands að vinna. Síðan erum við með kraftmiklar aðgerðir hvað varðar glæpastarfsemi og þá gengur eitt yfir alla þar. Þar erum við í landamærasamstarfi. Hér er líka munur á ríkisstjórninni og Miðflokknum. Við styðjum Schengen-samstarf vegna þess að við skiljum og vitum að alvörulögreglusamvinna byggir á upplýsingamiðlun. Við erum sterkari í samvinnu við önnur ríki þar.

Hv. þingmaður spyr um næstu aðgerðir. Ég hef áhuga á að skoða og bera saman hvernig Ísland stendur að veitingu ríkisborgararéttar, eins og ég sagði áðan, í samanburði við önnur ríki. Ég er að skoða dvalarleyfið. (Forseti hringir.) Við erum með alþjóðlegu verndina í góðum tökum. Aðalatriðið finnst mér vera að við vinnum þetta mál heildrænt séð.