157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

hækkun skatta.

[14:09]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Samfylkingin lofaði að hækka ekki skatta í aðdraganda kosninga. Viðreisn lofaði líka að hækka ekki skatta. Engu að síður eru núna boðaðir yfir 25 milljarðar í skattahækkanir. Því spyr ég hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra: Af hverju eruð þið að svíkja gefin loforð?