Fjárlög 2006.
Hæstv. forseti. Hér gerast menn mjög miklir spekingar. Við vísum í tölur frá Seðlabanka Íslands. Reynist þær tölur rangar skulum við einfaldlega leiðrétta það. Það er hins vegar staðreynd að Íslendingar eru að verða ein skuldsettasta þjóð í heiminum. (Gripið fram í: Allt annað mál.) Það er allt annað mál. En ég vísaði í hlutfall ríkisins og ríkisstofnana, þ.e. skuldastöðu, hlutfall hennar af vergri landsframleiðslu samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands. (EOK: Frá hvaða tíma?) Ég er ekki með dagsetningu á þessu en þetta eru nýjar tölur.
Hins vegar væri fróðlegt að heyra álit hv. þingmanns, sem fór mikinn í ræðu sinni í dag og hafði uppi mikil varnaðarorð. Hann tók þátt í því ásamt félögum sínum í Sjálfstæðisflokknum og samstarfsmönnum í Framsóknarflokknum að færa niður tekjur ríkissjóðs um á milli 20 og 30 milljarða kr., þegar allt er komið til, þ.e. þegar kjörtímabilið er úti. Hann horfir síðan upp á hagstæðar tölur ríkissjóðs sem eru til orðnar vegna tímabundins hagnaðar, vegna þensluskatta og einkavæðingar. Síðan kemur hv. þingmaður og segir að hér sé allt í lukkunnar velstandi. Mér finnst gæta mikilla mótsagna í afstöðu hv. þingmanns til þessa.