152. löggjafarþing — 4. fundur, 3. des. 2021.
vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefndar.
Með bréfum, dagsettum 2. desember 2021, hefur forseti óskað eftir því, sbr. 8. tölulið 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fjalli um tvær skýrslur Ríkisendurskoðunar, sem bera heitin Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og Þjónusta við fatlað fólk samkvæmt lögum nr. 38/2018, innleiðing og framkvæmd sveitarfélaga hins vegar.