152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[15:06]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Margir tala um að næsti faraldur verði kulnunarfaraldur út af álagi, t.d. á heilbrigðisstéttir í Covid-faraldri og á framlínufólkið okkar allt saman. Það þarf auðvitað að gefa því sérstaklega gaum af því að þetta er líka ástand sem er búið að vara svo lengi. Einhverjir héldu að þeir væru bara að vinna myrkranna á milli til að bjarga skjólstæðingum sínum í stuttan tíma en þetta er að verða komið vel á annað ár. Því miður mun þá eitthvað undan láta því að öll erum við bara venjulegar manneskjur sem þolum ekki endalaust álag.

Nú sit ég náttúrlega ekki við samningaborðið, eða við sem erum hér, þar sem verið er að semja við sérfræðinga, (Forseti hringir.) en það er auðvitað algerlega ótækt að sjúklingar beri kostnaðinn af því að fara til sérfræðinga og hann er svo mikill að það fer eftir efnahag hvort fólk nær í þá þjónustu eða ekki.