fjárlög 2022.
Frú forseti. Þetta var ágæt og áhugaverð spurning að mínu mati. Ég tek bara undir það að það er full ástæða til að stjórnvöld reyni að vinna með bændum að nýsköpun í þeirri grein. Ég tek undir að þar eru enn mörg ónýtt tækifæri. Þó þýðir ekki að nálgast málið á þann hátt, sem ég var reyndar ánægður með að heyra hv. þingmann segja, ef ég skildi hann rétt, að loka sjoppunni, moka ofan í skurði og breyta landslaginu hér í einhvers konar votlendi eins og fyrir landnám. Við þurfum að nýta landið. Það er óhjákvæmilegt fyrir okkur mannfólk almennt, ég er ekki bara að tala um Íslendinga. Við þurfum að nýta landið og gera það á sem umhverfisvænastan hátt. Og eitt það umhverfisvænasta sem við Íslendingar getum gert er að borða íslenskan mat því að með því lágmörkum við kolefnissporið. Þess vegna hefur verið áhyggjuefni að fylgjast með því að í auknum mæli hefur verið stuðlað að innflutningi matvæla á Íslandi.