fjárlög 2022.
Frú forseti. Ég held að hv. þingmaður hafi hitt naglann á höfuðið með því að benda einmitt á hræsnina í loftslagsmálum sem er stóra vandamálið á heimsvísu í þessum málaflokki. Nú sótti ég ráðstefnuna í Glasgow í síðasta mánuði. Þar var stóra gjáin í salnum á milli okkar frá ríkari löndum heims og fólksins frá fátækari ríkjunum sem er farið að finna fyrir áhrifum loftslagsbreytinga á eigin skinni. Stóra hræsnin er sú að í París lofuðu ríki heims að leggja 100 milljarða dala í sjóð sem ættu að renna til að hjálpa fátækari ríkjum að komast yfir hjallann, að þróa loftslagsvænni tækni og að bregðast við neikvæðum afleiðingum. Þessir 100 milljarðar áttu að nást á síðasta ári og 80 milljarðar skiluðu sér, 80 af 100.
Á sama tíma eru þessi ríku lönd að (Forseti hringir.) hreykja sér af góðum árangri heima fyrir og kannski að skamma fátæku ríkin fyrir að standa sig ekki nógu vel en standa síðan ekki sjálf við gefin loforð gagnvart fátækum löndum.