fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Þetta var góð og skemmtileg ræða. Mig langaði aðeins að ræða eitt sem hv. þingmaður nefndi sem tengist SÁÁ. Það er nú þannig með mörg félagasamtök að þau eru að berjast við að finna fjármagn til að geta sinnt hlutverki sem ætti jafnvel að vera á herðum ríkisins. Þarna eru samtök sem hafa t.d. tekið þá góðu ákvörðun að hætta að nýta spilakassa sem fjáröflunarleið. Þrátt fyrir að þau taki slíka ábyrga ákvörðun kemur ríkið ekkert til móts við þau með auknu fjármagni.
Mér finnst þetta vera nokkuð sem ég er farinn að sjá mikið af hjá frjálsum félagasamtökum. Þau eru farin að þurfa að vera í virkilegri baráttu, ekki bara eins og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson benti á heldur þurfa þau að koma hingað og betla, biðja endalaust um að komast aftur inn á fjárlög og þau þurfa líka að vera mikið í því að sækja fjármagn til almennings. Mér fannst það einmitt mjög athyglisvert, þegar við fórum nokkrir hv. þingmenn í heimsókn til þeirra í Samtökunum '78, að í ljós kom að þegar lagt var saman allt það fjármagn sem ríki og sveitarfélög lögðu til þeirra samtaka var það lægri upphæð en það sem þau fá beint frá einstaklingum.
Mig langar að heyra frá hv. þingmanni hver sé besta leiðin sem við getum haft til að tryggja fjármagn til samtaka eins og SÁÁ sem eru að vinna mikilvægt starf í þágu þjóðarinnar og þágu ríkisins.