152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[20:43]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka kærlega fyrir spurninguna og skal reyna að bregðast við. Ég ætla nú bara að bregðast við með því að lesa hér aðeins upp úr stjórnarsáttmálanum, af því að þú spyrð um stefnu:

„Á kjörtímabilinu verður lögð áhersla á uppbyggingu þar sem við munum styðja við fjölbreyttar og öflugar stoðir efnahagslífsins og beita okkur fyrir aukinni opinberri fjárfestingu í grænum verkefnum og rannsóknum, nýsköpun og skapandi greinum. Ríkissjóður mun halda áfram að draga úr eignarhaldi í fjármálakerfinu og nýta ábatann til uppbyggingar innviða.“

Að frátaldri seinni setningunni þá er þessi fyrri eitthvað sem ég held að allir flokkar geti skrifað upp á, alveg sama hvernig þeir myndu koma sér saman um að mynda ríkisstjórn. Þannig sé ég svolítið þennan stjórnarsáttmála. Hann er ofboðslega almennt orðaður um margt. Það er fullt af frösum sem við höfum séð í mörgum stjórnarsáttmálum, hátíðarræðum og öðru í gegnum tíðina og þá hefði maður einmitt haldið að við ættum að sjá þess merki í fyrstu fjárlögum þessarar ríkisstjórnar. Það væri einhver útfærsla á þessum almennt orðuðu fyrirheitum sem allir geta tekið undir og við þekkjum öll hvernig eru. En ég hef einmitt ekki rekist á að það sé sérstaklega skýr sýn, hvorki hvað þetta varðar né marga aðra hluti. Það er svolítið tilviljanakennt hvernig þetta er að koma inn. Við vorum að ræða áðan um að hér hafa heyrst ummæli um að málið sé bara lagt svona inn og svo breytist þetta einhvern veginn í meðförum þingsins. Auðvitað segir það okkur heilmikla sögu um að það er hvorki skýra sýn á þetta, a.m.k. ekki handfasta sýn, að sjá í stjórnarsáttmálanum né heldur í fjárlagafrumvarpinu sjálfu. En við í stjórnarandstöðunni getum kannski beint þeim á réttar brautir á næstu vikum.

(Forseti (BLG): Forseti vill minna hv. þingmenn á að nota rétt ávörp. Þegar við notum orðin þú og þið o.s.frv., er okkur hætt við því að detta í persónuárásir og svoleiðis, það er svona „slippery slope“, afsakið orðbragðið, ég kann ekki rökfræðiheitið á því á íslensku. Forseti leyfir sér það sem hann leyfir sér hérna.)