155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[09:57]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Frú forseti. Aftur: Því verður ekki svarað á 50 sekúndum. Stutta svarið er þetta: Það verður ekki gert með stuttum átaksverkefnum. Það verður gert með því að fylgja eftir og halda áfram kerfisbreytingum sem eru í gangi, og við þurfum að byggja ofan á þær. Námsgögn skipta gríðarlega miklu máli. Það er til skammar að við séum ekki að setja nægilegt fjármagn í námsgagnagerð. Þótt við séum að tvöfalda það hér á næsta ári er langt í land hvað það snertir. Matskerfi sem virkar dag frá degi í skólakerfinu, eins og lesferillinn er þegar byrjaður að gera, það þarf að dýpka hann og efla, það mun skipta máli. En lykilatriðið er að nú erum við komin með stofnun og ég hvet allsherjar- og menntamálanefnd til að heimsækja Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Hún er aflið sem á að geta farið út í skólana. Hún er byggð upp sem þjónustustofnun frá grunni og hún er þegar byrjuð að vinna að þessum málum. Þrátt fyrir að stofnunin hafi ekki orðið til fyrr en 1. apríl er hún þegar (Forseti hringir.) byrjuð, í ólíkum atriðum og ólíkum verkefnum, að fara út í héruðin, fara út í skólana, fara út í sveitarfélögin (Forseti hringir.) til að aðstoða skólana við að takast á við áskoranir eins og læsi. Það þarf að efla það átak, það þarf að styrkja (Forseti hringir.) það enn frekar og ég lýsi miklum vilja til samstarfs við hv. allsherjar- og menntamálanefnd í því ferðalagi.

(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hæstv. ráðherra og hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)

Ég biðst afsökunar.