155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:22]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir og fagna áhuga hennar. Ég hlustaði á setningarræðu hennar og fagna áhuga hennar á þessum málum. Við erum sannarlega á þeim stað að það hefur aldrei verið meira samtal á milli kerfanna. Samtalið er að eflast dag frá degi. Við þurfum hins vegar að stíga fastar inn gagnvart þyngri úrræðunum en ekki gefa afslátt af því sem við erum að byggja upp þegar kemur að því að stíga fyrr inn. Efling farsældar — það þarf að nota hana, það þarf að nota samtalið á milli kerfanna úti í héruðunum. Ef það er ekki gert þá er það eins og að ætla að hætta að setja upp reykskynjara og kaupa slökkvitæki en kaupa bara slökkvibíla. Við þurfum líka að horfa á fjárfestingar í öðrum kerfum. Þegar ég hef ferðast um og talað við Barnavernd er eitt af því fyrsta sem allir nefna að það þurfi meira í samfélagslögregluna. Þess vegna stigum við inn, mennta- og barnamálaráðuneytið, og settum fjármagn í samfélagslögregluna í sumar með dómsmálaráðuneytinu, af því að dómsmálaráðuneytið hafði ekki svigrúm til að stíga þar inn. Nú erum við að sjá að dómsmálaráðuneytið fær aukið fjármagn. (Forseti hringir.) Það gleður engan meira en þann sem hér stendur. Ég er ekki sjálfur að biðja um aukið fjármagn inn í mína málaflokka heldur (Forseti hringir.) bara allt það sem virkar, allt það sem þarf til svo að hægt sé að stíga inn í málin. Ég fagna ræðu hv. þingmanns og lýsi miklum vilja til samstarfs í þessum málum.

(Forseti (JSkúl): Forseti ítrekar að samið er um ræðutíma.)