fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Allar þær skýrslur sem unnar eru, hvort sem það eru umræddar skýrslur, sem þingmaðurinn vitnar til, skýrsla sem lögð var fyrir þingið að beiðni Vilhjálms Árnasonar, úttekt OECD um stöðu innflytjenda nú eða skýrsla um stöðu drengja — allt nýtist þetta inn í aðgerðir og aðgerðaáætlun sem verið er að vinna. Ef við tökum t.d. skýrslu um stöðu innflytjenda var ráðherranefndarfundur í gær, ef þingmaðurinn er að vitna til skýrslunnar sem kynnt var í vikunni, þar sem var verið að ræða stöðu innflytjenda og hvernig við myndum taka það inn í okkar aðgerðaáætlanir. Allar skýrslur sem unnar eru fara inn í aðgerðaplan, aðgerðaáætlun. Það er hluti af menntaþinginu sem ráðgert er 30. september þar sem gert er ráð fyrir því að í upphafi verði farið yfir stöðuna, farið yfir tölfræðina, þar sem m.a. verður horft til skýrslna sem hafa verið unnar. Það er gert ráð fyrir því að farið verði yfir þær aðgerðir sem við höfum verið að vinna og á hverju þær eru byggðar og síðan verða línurnar fyrir næstu aðgerðir lagðar. Þegar við erum að láta vinna skýrslu, þegar við erum að láta vinna vinnu fyrir Stjórnarráðið, miðar allt að því hvert við viljum stíga og með hvaða hætti. Það sjáum við m.a. í fjölbreyttum aðgerðum þegar kemur að stöðu barna með erlend tungumál og menningarbakgrunn. Þetta sjáum við líka í aðgerðunum sem við höfum verið að vinna að í núverandi aðgerðaáætlun. Ég held að það hafi verið einhverjar 8–10 skýrslur sem höfðu komið út sem hvöttu til þess að sett yrði upp sérstök þjónustueining við skólakerfið. Þess vegna endurstofnuðum við Menntamálastofnun sem þjónustustofnun. Þetta skiptir allt máli og er allt nýtt inn í það sem við erum að gera og það á við um skýrsluna sem hv. þingmaður nefnir líkt og aðrar.