fjárlög 2025.
Frú forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um framkvæmd ferðamálastefnu til 2030 sem var samþykkt hér í sumar, m.a. með stuðningi okkar í Samfylkingunni. Þar eru tvö atriði, D.1. og D.2., sem varða þolmörk og álag á áfangastöðum ferðamanna og álagsstýringu. Ég sé í frumvarpinu að gert er ráð fyrir því að setja einhverja tugi milljóna í þessar fyrirætlanir og ég tel það vera mjög gott. Við vitum auðvitað, og það sést í frumvarpinu, að ferðaþjónustan þarf að vera sjálfbær umhverfislega gagnvart náttúrunni en hún þarf líka að skapa verðmæti fyrir þjóðarbúið. Það kemur skýrt fram hér.
Það er eitt sem ég var að hugsa um hvort hæstv. ráðherra gæti farið aðeins dýpra í. Hér á að verja 20 millj. kr. í innleiðingu álagsstýringar og þróun verkfærakistu vegna þolmarkanna. Er það fyrirætlunin að hafa samræmda álagsstýringu og þá væntanlega gjaldastýringu, af því að ef við vitum að við þurfum, hvort sem við beitum ítölu eða gjöldum, að vernda náttúruna og passa að álagið verði ekki of mikið á hana? Svo ég segi það þá held ég að það sé mjög mikilvægt að farið sé af stað í þessa vinnu með því að hafa þetta samræmt. Það varðar auðvitað viðmótið gagnvart ferðafólki, jafnræði milli fyrirtækja og það að við getum stýrt þessu með sama hætti, hvort sem um er að ræða einkalönd eða t.d. þjóðgarða.