155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:31]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil kannski árétta að samkvæmt þeirri efnahagsgreiningu sem við höfum gert á kvikmyndaframleiðslu þá er það þannig að þegar búið er að fjárfesta 1 kr. í kvikmyndagerð fær hagkerfið hana sjöfalt til baka. Það eru svo mikil margföldunaráhrif vegna aðkeyptrar þjónustu. Þetta er öðruvísi en með margar atvinnugreinar. Það er því hárrétt hjá hv. þingmanni. Það sem ég átti kannski frekar við, bara til að skýra mál mitt, er að það gerist stundum þegar það kemur mikil erlend fjárfesting og framboðið af vörunni er takmarkað þá hækkar það. Það getur þá valdið aukaverðbólgu innan geirans. En ég var nú bara að nefna þetta sem almennar áhyggjur mínar af því þegar vel gengur. Eins og við þekkjum þá er mikil verðbólga þegar það er mikill hagvöxtur. Þetta voru kannski óþarfar útskýringar en það er þannig að þar til að við náum þessu menningarframlagi inn þá er Kvikmyndasjóður ekki eins sterkur og ráðherrann hefði viljað. En ég verð að taka þátt í þessum aðhaldssömu fjárlögum eins og allir aðrir ráðherrar.