fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ef við lítum á hagkerfið í heild sinni þá eru þessir grunnþættir á Íslandi býsna sterkir. Í fyrsta lagi er atvinnustig mjög hátt, 3,5% atvinnuleysi. Skuldir eru að lækka ef við berum það saman við þróun landsframleiðslu og við höfum verið að fá tekjuauka á síðustu þremur árum sem er rúmir 300 milljarðar. Það skýrist auðvitað af þessum mikla hagvexti. En ég er sammála hv. þingmanni um að stýrivaxtastigið er mjög hátt og það er mjög íþyngjandi og það er mjög alvarlegt. Auðvitað er eina leiðin að verðbólga lækki. Þá lítum við á samsetningu verðbólgunnar eða vísitölu neysluverðs og við sjáum auðvitað að húsnæðisliðurinn er enn og aftur okkur erfiður. Ef við tökum húsnæðisliðinn út þá er verðbólga 3,6%. Ég tel að það sem verði að gerast og það sem stjórnvöld eru að vinna að og innviðaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra í samstarfi við sveitarfélögin, er að við verðum að auka framboð á lóðum. Reykjavíkurborg ætlar að tvöfalda það frá síðasta kjörtímabili. Það er eina leiðin og það þarf að vera þannig magn að aðilar sem eru á þessum markaði í raun og veru sjái verð, hlutfallslegt verð, lækka. Það er leiðin til þess að ná tökum á verðbólgunni. Þetta er knúið áfram af skorti, húsnæðisskorti. Það að ná niður verðbólgunni og ná betri tökum á húsnæðismarkaðnum er mikilvægasta verkefni þessa vetrar.