fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferð sína á helstu áherslum og hún stiklaði á stóru í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi. Ég má nú bara til með að fagna því að við séum hástökkvarar í netöryggi. Það er af nógu að taka og ég hlakka til að fræðast meira um fyrirliggjandi áætlanir þar í vetur. Á málefnum háskólanna langaði mig samt aðeins að snerta. Við erum búin að fá fína kynningu á breyttu reiknilíkani háskólanna og árangurstengdri fjármögnun þeirra, það var birt í fyrrahaust og við höfum beðið með mikilli eftirvæntingu eftir að fá að vita meira um það hvernig það mun raungerast í fjármögnun, sérstaklega opinberu háskólanna. Við sjáum að það eiga sér stað ákveðnar vendingar þegar afnám skólagjalda opinberra háskóla varð að raunveruleika. Það eru auðvitað ekki allir skólarnir sem nýta sér þetta sem hafa heimild til að innheimta skólagjöld, t.d. HR. Staðan er öðruvísi í HÍ og ég vildi fá það fram mögulega frá hæstv. ráðherra ef hún hefur tök á að gera grein fyrir því hvort og hvernig það hefur áhrif á fjármögnun Háskóla Íslands. Þetta skiptir máli vegna þess að við sjáum líka að farið verði af stað með gjaldtökuheimildir fyrir nemendur utan Evrópska efnahagssvæðisins. Ég er áhugasöm um þetta. Ég vil líka gjarnan fá að vita hvort það séu til grófar tölur um hvað það gæti skilað miklu inn, út frá þeim tölum sem við getum gengið út frá.
Svo vildi ég líka spyrja um STEM-áherslur. Við höfum rætt það aðeins í vetur og það er ýmist STEM eða STEAM, ég geri mér grein fyrir því að þetta er auðvitað stundum það sama, (Forseti hringir.) en hvort er það STEAM eða STEM?