fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég veit ekki til hvaða tekjugats hv. þingmaður er að vísa þegar allir háskólar koma betur út á næsta ári og þar næsta ári út frá þeirri aukningu sem verið er að leggja í háskólana. Þegar við berum okkur saman við önnur lönd þá er auðvitað aukning þar líka. Það er rétt að við stöndum aftar en Norðurlöndin þegar kemur að fjármagni í háskólastigið en ekki í grunnskóla- og framhaldsskólastigið. Þar stöndum við þeim talsvert framar í útgjöldum.
Þegar spurt er um þetta frumvarp þá er þetta ákvörðun sem hefur líka verið tekin á öllum Norðurlöndunum. Við viljum fá alþjóðlega nemendur inn í háskólana en við teljum rétt að forgangsraða fjármunum í þá nemendur sem hér búa, í nemendur sem eru með frjálst flæði innan Evrópu og háskólarnir geti þá skapað sér tekjur af því að laða til sín nemendur í ákveðnum greinum eins og við höfum séð ganga vel á Norðurlöndunum. Vissulega er þetta tekjuskapandi. En þetta er ekki til að mæta neinu gati. Þetta er til að fara í enn frekari sókn til að gera betur og efla háskólastigið að öllu leyti og ég hlakka til að ræða þetta frumvarp í þinginu í haust.