155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:50]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir. Ég tek undir orð hans um mikilvægi rannsókna- og vísindasjóða og hvað þeir ýta undir mikilvægan þátt í sókn samfélagsins okkar. Það liggur fyrir á þingmálaskrá hjá mér frumvarp um að sameina sjóði til að hægt sé að veita fjármagn þangað sem það nýtist best, að þessi aðhaldskrafa fari meira á yfirbygginguna en ekki í útdeilinguna. Það er auðvitað ekki hægt að lofa því alveg strax.

Rannsóknasjóður fékk hlutfallslega minnstu aðhaldskröfuna sem lögð var á sjóði ráðuneytisins. Við forgangsröðuðum því sérstaklega þannig til að reyna að hlífa honum. Á sama tíma held ég að aðhald sé mikilvægt í þessum fjárlögum og við verðum að sýna heildarmynd gagnvart verðbólgu og vaxtaákvörðunum. Við þurfum að nýta þá 840 millj. kr., sem fara í umsýslu allra sjóða ráðuneyta, betur í sjóðina, beint til fólks og í rannsóknarverkefni og nýsköpun en ekki í jafn mikla yfirbyggingu. Og þegar við munum bjóða upp á eina sjóðagátt þá mun umsýslukostnaður annarra sjóða vonandi líka minnka. Ég mun bjóða öðrum ráðherrum að geta sameinað sína sjóði inn í einn áherslusjóð þar sem þau geta komið með sitt fjármagn inn til að styðja við einhverja nýsköpun eða eitthvað á sínu málefnasviði.

En ég tek undir með hv. þingmanni, það er mjög mikilvægt að við höldum áfram sókn. Við erum með stefnu Vísinda- og nýsköpunarráðs þar sem við ætlum áfram að vinna að sókn þessara sjóða. Við jukum það verulega í heimsfaraldri, kannski langt umfram þau áform sem uppi voru og þess vegna kemur þessi lækkun — við erum kannski að ganga á þá hækkun sem við veittum í heimsfaraldrinum. En ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þann stuðning sem hann sýnir þessu umhverfi.