fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir greinargott svar. Mig langar að víkja að öðru máli sem er læknisþjónusta og heilbrigðisþjónusta á landsbyggðinni. Það er gríðarlegur skortur á læknum. Ég var með þingmál á síðasta vori sem ég skráði, um að það yrði tekið upp það sem kallað er „pilot“-verkefni í samstarfi við sveitarfélög og ég veit að sveitarfélög á Snæfellsnesi hafa mikinn áhuga á að fara í svona verkefni, koma með heildstæðan kjarapakka til að laða til sín lækna og fjölskyldur þeirra líka. Mun heilbrigðisráðherra beita sér fyrir því eða er að beita sér fyrir því að tryggja að það sé ekki læknislaust á stórum hluta landsins með auknu samstarfi við sveitarfélögin og þá með eins konar kjarapökkum? Svo eru það samningarnir sem eru 20% af fjárútgjöldum, það eru samningar við stofnanir og einkaaðila og 26 samningar heyra undir heilbrigðisráðuneytið. Er ekki tryggt í samningum við sérfræðilækna að þeir muni sinna landsbyggðinni? (Forseti hringir.) Ég veit að á Norðurlandi að verið er að fara fram á að það verði sett í samningana. Mun heilbrigðisráðherra sjá til þess að það verði í öllum samningum við sérfræðilækna að sinna landsbyggðinni líka, þá með vikudvöl eða eitthvað svoleiðis, nokkra daga dvöl á hverjum tíma?