155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[14:40]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir þessa spurningu og þessar vangaveltur um þessi mál sem við höfum nú margoft rætt. Ég vil líka þakka hv. þingmanni sérstaklega fyrir að láta sig þetta mál varða í heild sinni, hún er ávallt með góðar hugmyndir og góð mál á þessu sviði og við höfum áður náð árangri í því að styðja við þær fjölskyldur sem þurfa oft á tíðum að fara í gegnum mjög erfiðar meðferðir í nokkrum umferðum, ef við getum orðað það þannig. Það tekur á og þá þarf stuðning. Hér er mjög góð hugmynd sem snýr að því að forgangsraða og horfa til þessara valkvæðu ófrjósemisaðgerða, herraklippinga, þar er 100% niðurgreiðsla. Við erum að styðja í annarri og þriðju umferð frjósemisaðgerða og tæknifrjóvgana verulega en kannski ekki í fyrstu og þar á eftir. Við erum að horfa til þess í ráðuneytinu að styðja við þar og reyna að auka fjárhagslegan stuðning fyrr og áfram. Ég ætla bara að taka þessa hugmynd og fanga hana mjög jákvætt. Ég tek það bara inn í þá vinnu sem er í gangi í ráðuneytinu og það frumvarp sem hv. þingmaður hefur lagt fram hér á Alþingi. Við höfum áður hnýtt þetta svona saman, vinnunna í þinginu varðandi þessi frumvörp, og gert það á fleiri sviðum. Þannig að ég get bara svarað þessu á einfaldan hátt: Já.