155. löggjafarþing — 4. fundur, 13. sept. 2024.
fjárlög 2025.
1. mál
Forseti. Þetta var ein spurning. Ráðherra þakkaði fyrir spurningarnar en þetta var bara ein spurning sem var ekki svarað. Það er rosalega erfitt að eyða tímanum hér í þessum ræðustól og þurfa alltaf að endurtaka spurningar sem á bara að svara strax. Telur ráðherra, eftir sinni bestu vitund, nægilegt fjármagn vera hjá Landspítalanum og öðrum heilbrigðisstofnunum til þess að við munum ekki fá umsagnir á næsta ári um að lykilþáttum starfseminnar hafi ekki verið sinnt?