155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:15]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Við verðum að koma okkur upp uppfærðri aðgerðaáætlun sem virkar þannig að við drögum úr losun gróðurhúsalofttegunda, hvort sem það eru 150 aðgerðir eða 15. Við þurfum að ná þessum árangri og tölurnar sýna að við erum ekki að ná þeim árangri sem við höfum bæði sagst ætla að ná og skuldbundið okkur til að gera. En auðvitað er mikið undir í aðgerðaáætluninni og ég hlakka til að sjá þá áætlun þegar hún verður fullbúin eftir samráðsgáttarferlið.

En að allt öðru. Mig langar að spyrja hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hvort hann sé sammála mér um það að það hafi verið, kannski ekki mistök en óheppilegt að sameina ekki alla þjóðgarða landsins undir einn hatt þegar við afgreiddum þau mál fyrr á þessu ári.