fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni fyrir innleggið. Ég vil líka taka það fram, úr því að við erum hér að ræða um aðgerðirnar, að nýskipuð verkefnisstjórn loftslagsaðgerða mun fara í frekari forgangsröðun með nákvæmu kostnaðar- og ábatamati til að tryggja innleiðingu og góða forgangsröðun aðgerða á næstu árum.
Hvað varðar fyrirspurn hv. þingmanns um þjóðgarðana þá getum við orðað það þannig, virðulegur forseti, að hér kom frumvarp frá mér sem ég taldi að væri æskilegt að yrði samþykkt. Ég sagði hins vegar þegar ég lagði þessa hluti fram að nú færu allir smákóngar landsins af stað og það er alveg ástæða fyrir því að ég lagði fram frumvarpið eins og það var. En ég er mjög ánægður, vegna þess að þetta hefur oft verið reynt og oft hefur verið talað um þetta en loksins tókst okkur að sameina stofnanir. Að fækka þeim stofnunum er eitthvað sem ég er mjög stoltur af og ánægður með. (Forseti hringir.) Maður á alltaf að vera jákvæður og uppbyggilegur, er það ekki, virðulegi forseti?