155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:20]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt innlegg. Ég treysti því og trúi því varðandi Hvammsvirkjun og Búrfellslund að framkvæmdir hefjist sem allra fyrst. Ég ligg ekkert á þeirri skoðun minni að það er mikil ábyrgð þeirra sem reyna að koma í veg fyrir að við getum framleitt græna orku. Mér er ekki skemmt yfir framgöngu aðila. En við skulum vona að það hafi ekki áhrif á framkvæmdir og þær fari af stað. Það leysir ekki allan vanda, alls ekki. Sem betur fer er búið að finna heitt vatn sem þýðir að það losar um rafmagn í kerfinu. Hv. þingmaður spurði sérstaklega um Vestfirði og það er auðvitað ánægjulegt að Landsvirkjun og Orkubú Vestfjarða hafa náð samningum um kaup á forgangsorku þannig vonandi sjáum við minna af dísilframleiðslu. Það breytir því ekki að það vantar græna orku á Vestfjörðum.

Varðandi þessar 500 milljónir þá er það svo, virðulegi forseti — og það er nú eitt sem hefur verið lítið í fréttum en það á líka að stækka Sigölduvirkjun sem er bein afleiðing af einföldunarfrumvarpinu sem var samþykkt hér, þar erum við með einfalt og skilvirkt regluverk. En varðandi þessar 500 milljónir þá liggur það fyrir að við ætlum að halda áfram að leita að heitu vatni. Það hefur gengið mjög vel, framar vonum og við erum komin með mjög góðar upplýsingar, betri en við höfum haft áður og við munum halda áfram að leita að heitu vatni. Það er ánægjulegt að þeir hjá Íslenskum orkurannsóknum eru hættir að tala um köld svæði. Við getum alltaf fundið heitt vatn og núna höfum við betri upplýsingar um það. Auðvitað gengur ekki allt upp en við munum halda því áfram.

Það sama var árið 1950, virðulegur forseti. Árið 1950 voru 530 smávatnsvirkjanir á Íslandi. Því miður fórum við í að loka þeim. Orkustofnun hefur tekið það út og mig minnir að það séu um 2.500 virkjunarmöguleikar fyrir smávirkjanir, auðvitað er ekki allt saman mögulegt (Forseti hringir.) en þar eru þúsundir megavatta undir og við þurfum núna við þessar aðstæður líka að líta til smærri virkjana.