fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svörin. Það er auðvitað traustvekjandi að heyra að það eigi að vinna að þessu með Sjúkratryggingar því ég ætla leyfa mér að segja að við höfum verið að rugla dálítið með það að færa ákvarðanir sem eru á stjórnsýslustigi yfir til t.d. Landspítala sem mér finnst ekki passa hreinlega.
Tíminn er stuttur. Ég er að velta fyrir mér af hverju verið er að skipta upp hjúkrunarheimilunum milli annars vegar heilbrigðisráðuneytisins og hins vegar félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, hvort það væri ekki einfaldara að hafa þetta bara í heilbrigðisráðuneytinu og vera ekkert að blanda þessu. Ég sé ekki fyrir mér að þetta muni ganga snurðulaust.
Svo langar mig að nefna að það er gerð sérstök aðhaldskrafa á heilsugæsluna vegna aukinnar greiðsluþátttöku sjúkratryggðra sem verður útfærð innan heilbrigðiskerfisins fyrir 2. umræðu fjárlaga. Er í rauninni verið að hækka hér gjöld á sjúklinga?